Home Fréttir Í fréttum 25.10.2016 Rarik spennistöðvar

25.10.2016 Rarik spennistöðvar

252
0
Mynd: Sigló.is Spennistöð Rarik á Siglufirði

Ríkiskaup, fyrir hönd RARIK ohf. kt: 520269-2669, óska eftir tilboðum í Jarðspennistöðvar. Jarðspennistöðvar eru dreifispennistöðvar sem eru staðsettar ofan á steyptri undirstöðu utandyra og eiga að tengjast 11 eða 19 kV jarðstrengskerfi. Einungis er óskað eftir tilboðum í þriggja fasa spennistöðvar. Um er að ræða rammasamningsútboð  sem tekur til útvegunar á jarðspennistöðvum samkvæmt  útboðslýsingu. Ekki er ljóst hvaða magn verður endanlega keypt á grundvelli þessa útboðs, þar sem ekki er hægt að sjá fyrir endanleg not fram í tímann.

<>

Útboðsgögn verða gerð aðgengileg á vef Ríkiskaupa miðvikudaginn 13.júlí 2016

Aukaskjöl