Home Fréttir Í fréttum 02.10.2025 Einbýlishúsalóðir í Móahverfi á Akureyri

02.10.2025 Einbýlishúsalóðir í Móahverfi á Akureyri

16
0
Mynd: Akureyri.is

Samþykkt hefur verið að auglýsa aftur eftir kauptilboði í byggingarrétt 18 einbýlishúsalóða í Móahverfi.

Akureyrarbær auglýsir eftir kauptilboði í byggingarrétt 18 einbýlishúsalóða í Móahverfi.

Við skipulag svæðisins var lögð áhersla á að leggja grunninn að nýju og vönduðu íbúðahverfi með fjölbreyttum íbúðagerðum og grænum svæðum sem verður aðlaðandi til búsetu. Áhersla er á góðar tengingar gangandi og hjólandi innan hverfis, við aðliggjandi hverfi og útivistarsvæði.

Í hverfinu í heild er gert ráð fyrir á bilinu 960-1.100 íbúðum og er þegar búið að úthluta fjölbýlis-, rað-, par- og einbýlishúsalóðum fyrir um 450 íbúðir.

Yfirlitsmynd af auglýstum lóðum

Úthlutunarskilmálar

Deiliskipulagsuppdráttur

Greinargerð deiliskipulags

Tilboðum í byggingarrétt lóða skal skila rafrænt í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 fimmtudaginn 2. október 2025.

Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.

Heimild: Akureyri.is