Home Fréttir Í fréttum „Á nippinu að við getum byggt íbúðir sem fólk getur keypt“

„Á nippinu að við getum byggt íbúðir sem fólk getur keypt“

22
0
Framkvæmdir. Eftir fjögurra ára vaxtarskeið dregst velta í byggingariðnaði saman. RÚV – Ragnar Visage

Skýr samdráttur er í byggingariðnaði í fyrsta sinn í fjögur ár. Þriðjungi færri íbúðir eru í byggingu en fyrir tveimur árum. Hagfræðingur óttast vítahring húsnæðisskorts og vaxtahækkana, verktaki segir þetta ekki koma á óvart.

Eftir fjögurra ára vaxtarskeið dregst velta í byggingariðnaði saman, störfum fækkar og minna er flutt inn af byggingarefnum. Þetta sýnir ný greining Samtaka iðnaðarins.

8.800 íbúðir voru í byggingu í mars 2023 samkvæmt mælaborði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en þær voru 7.200 í mars síðastliðnum. Það er fækkun um 1.600 íbúðir á tveimur árum. Í byrjun þessa mánaðar voru 5.500 íbúðir í byggingu.

Þetta samræmist ekki stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að fjölga íbúðum hratt með bráðaaðgerðum.

Óttast efnahagslegan vítahring

Ingólfur Bender aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
RÚV / Arnór Fannar Rúnarsson

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þetta hafa víðtæk áhrif – til dæmis í hærri vöxtum, sem komi öllum við. „Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem við sjáum þessi merki. Og ef fram fer sem horfir erum við að fara að sjá aftur þennan efnahagslega vítahring sem við höfum verið að reyna að losa okkur út úr á síðustu misserum. Sem er skortur á íbúðum, sem leiðir til aukinnar verðbólgu og hærri vaxta,“ segir Ingólfur.

Fólk geti síður keypt íbúðir

Hann segir eina afleiðingu þessa vera að fólk geti síður keypt íbúðir. „Fólkinu er haldið á hliðarlínunni, það kemst ekki inn á markaðinn út af þessu, þannig að það getur ekki keypt. Það er stór hluti af því vandamáli sem við er að glíma í augnablikinu.“

Segir fátt koma á óvart

Gylfi Gíslason verktaki og framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Jáverks.
RÚV / Arnór Fannar Rúnarsson

Gylfi Gíslason verktaki og framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Jáverks segir fátt koma á óvart – þessi samdráttur hafi verið fyrirsjáanlegur.

„Yfirlýst markmið og hlutverk Seðlabankans er að reyna að draga úr umsvifum í hagkerfinu og það er að byrja að skila sér svona hraustlega,“ segir Gylfi.

Hvernig finnur þú og þitt fyrirtæki fyrir þessu? „Aðföng hafa hækkað, eitt af þeim er fjármagn sem hefur hækkað mjög mikið. Við erum með mjög ströng lánþegaskilyrði.“

Segir atvinnugreinina notaða til sveiflujöfnunar

Þessu til viðbótar nefnir Gylfi hækkun á opinberum álögum á íbúðarhúsnæði í byggingu. „Og þegar allt þetta er talið saman þá er það á nippinu að við getum byggt íbúðir sem fólk getur keypt.“

Starfsfólki í byggingariðnaði fækkar.
RÚV / Anna Lilja Þórisdóttir

Hátt í 10% af vinnuafli á Íslandi – eða um 20.000 starfa í byggingariðnaði og starfsfólki er farið að fækka í greininni. „Það hefur reyndar verið vandamál í gegnum tíðina, með þessa atvinnugrein, að hún verður svolítið afgangs og hefur verið notuð til sveiflujöfnunar,“ segir Gylfi. „Það er einfalt að strika út á fjárlögum nokkur hús og nokkra vegi – en á bak við þetta eru fyrirtæki og fólk. Þegar það verður svona mikill samdráttur þá kostar að byggja upp aftur þegar við þurfum virkilega á þessu að halda.“

Heimild: Ruv.is