Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 24.09.2025 Sveitarfélagið Ölfus „Vetrarþjónusta í Þorlákshöfn, 2025-2027“

24.09.2025 Sveitarfélagið Ölfus „Vetrarþjónusta í Þorlákshöfn, 2025-2027“

13
0
Mynd: STÖÐ 2/SKJÁSKOT

Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í verkið:

„Vetrarþjónusta í Þorlákshöfn, 2025-2027“

Í verkinu felst snjóruðningur á stofnbrautum, húsagötum, bílaplönum stofnana og á hafnarsvæði í Þorlákshöfn.

Helstu magntölur eru:

  • Forgangur 1 (rauðar götur): 20 km.
  • Forgangur 2 (bláar götur): 10 km.
  • Bílaplön stofnana í Þorlákshöfn.
  • Hafnarsvæði Þorlákshafnar.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef Ölfuss á vefslóðinni: https://olfus.ajoursystem.net/tender eftir kl. 19:00 þann 10. september 2025.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Ölfuss eigi síðar en kl. 10:00 þann 24. september 2025. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað á útboðsvefinn. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

 

Loading..