Home Fréttir Í fréttum Nýtt húsnæði heilsugæslustöðvarinnar Reykjahlíð í Mývatnssveit var vígt í gær

Nýtt húsnæði heilsugæslustöðvarinnar Reykjahlíð í Mývatnssveit var vígt í gær

78
0

Nýtt húsnæði heilsugæslunnar er bylting í aðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og íbúa í Mývatnssveit, en heilsugæslan leysir af gamalt íbúðarhús, þar sem heilsugæslan hefur verið til húsa frá árinu 1984. Við þessa breytingu flyst sjúkraþjálfun inn í nýju heilsugæsluna og er það framför í þjónustu við íbúa.

<>

Heilsugæslan Reykjahlíð þjónar grunngæslu í um 400 manna byggðalagi allan ársins hring, ásamt því að þjóna einnig þeim fjölmörgu ferðamönnum sem heimsækja svæðið.

Í húsnæðinu er aðstaða fyrir hjúkrunarfræðing, ljósmóður, sálfræðing, iðjuþjálfa, lækni, sjúkraliða, ritara og sjúkraþjálfara. Lyfjaafgreiðsla eða apótek er í húsnæðinu. Heilsugæslustöðin er hluti af Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Heimild: Fsr.is