Félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og forráðamenn Hrafnistu opnuðu í fyrradag nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi. Í tilkynningu segir að yfir séu 44 rými í Boðaþingi og því séu hjúkrunarrýmin nú orðin 108.
Eignarhald er sameiginlega á hendi ríkisins og Kópavogsbæjar en Hrafnista annast reksturinn. Byggingin er alls 4.160 m2 að stærð.
„Við hlökkum til að bjóða nýja íbúa velkomna en þeirra bíður meðal annars stórkostlegt útsýni af svölum og úr borðsal heimilisins, sem breytir um svip með veðri og árstíðum. Þetta er eins og lifandi málverk sem náttúran málar á hverjum degi,” segir María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, í tilkynningu.
Þar kemur einnig fram að þau sem hafi haldið erindi á hátíðinni hafi verið Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu og Óskar Jósefsson, forstjóri Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.

Ernir Eyjólfsson
Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði þetta mikilvægan áfanga.
„Með opnun nýrra hjúkrunarrýma í Boðaþingi getum við tryggt fleiri eldri borgurum öruggt og fallegt heimili. Opnunin í dag er enn einn áfangi í stórsókn stjórnvalda í uppbyggingu hjúkrunarheimila á landinu.“

Ernir Eyjólfsson
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sagði þetta langþráðan áfanga.
„ Veruleg fjölgun hjúkrunarrýma á næstu misserum er á áætlun, samhliða eflingu þjónustu við aldraða sem geta búið heima fái þeir til þess góðan stuðning. Þetta er stór dagur og gleðilegur, fyrir íbúana hér, aðstandendur þeirra og samfélagið allt.“
Uppbygging heimilsins hefur tekið nokkuð ár. Á vormánuðum 2022 var efnt til samkeppni um hönnun og byggingu heimilisins. Tillaga THG Arkitekta og ÍSTAK hlaut brautargengi. Hönnun á grundvelli vinningstillögunnar hófst strax að lokinni samkeppni og jarðvegsframkvæmdir hófust í maí 2023. Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) annaðist útboðsmál og verkefnastjórn fyrir hönd verkkaupa.
Í tilkynningu kemur jafnframt fram að Hrafnista er stærsti rekstraraðili öldrunarþjónustu á landinu og reki alls átta dvalarheimili í fimm sveitarfélögum. Félagið er óhagnaðardrifið dótturfélag Sjómannadagsráðs sem rekið hefur dvalarheimili Hrafnistu í tæp sjötíu ár.
Heimild: Visir.is