Home Fréttir Í fréttum Yfirverktaki rifti samningi vegna brota

Yfirverktaki rifti samningi vegna brota

279
0
Hreiðar Hermannsson

Fyrirtækið Isdek­ora greiddi verkamönnum sem reistu vinnubúðir á Bakka norðan Húsavíkur tæplega sex hundruð króna tímakaup. Isdekora ehf. er í eigu Remigijus Norkus og starfaði sem verktaki fyrir byggingarfélagið Sandfell. sem er í eigu Hreiðars Hermannssonar.

<>

Fréttablaðið greindi frá áhyggjum verkalýðsfélagsins Framsýnar af kjörum verkafólks við framkvæmdir fyrir norðan, þá við Þeistareyki, seint í mars á þessu ári.

Þá greindi Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar, frá því að félagið stæði í ströngu eftir að framkvæmdir hófust við Húsavík, um brot á kjörum verkafólks. Dæmi væru um hugmyndir um að greiða verkafólki tæpar sex hundruð krónur á tímann. Kjör á fimmta tug verkafólks við Þeistareyki voru leiðrétt með aðkomu verkalýðsfélagsins á síðasta ári.

Í tilfelli verkafólks sem vann hjá Isdekora sagði Aðalsteinn að umræddir starfsmenn ynnu 120-130% vinnu og væru þannig sviknir um hátt í þrjú hundruð þúsund krónur á mánuði. Morgunblaðið greindi fyrst frá kjörum verkafólks á Bakka í júlí á þessu ári.

Hreiðar Hermannsson, eigandi Sandfells, segist engan grun hafa haft um slæm kjör verkafólks hjá undirverktaka sínum. „Enginn frá þessum verktaka vinnur fyrir Sandfell í dag og um leið og þetta varð uppvíst var gengið í málið. Ég var algjörlega grunlaus,“ segir Hreiðar um málið og að um fimm starfsmenn hafi verið að ræða en á síðari stigum framkvæmda aðeins tvo.

Hann hafi áður reitt sig á sama verktaka og talið hann traustan. „Hann hefur unnið nokkrum sinnum fyrir mig og hann sagði mér að allt væri í toppstandi. Við komumst að því að þetta væri ekki í lagi og þar með var öllum samningum rift,“ segir Hreiðar og segir brot verktakans hafa verið áfall fyrir sig.

„Yfirleitt er borgað yfir taxta og þegar það er greitt undir taxta þá er það algjörlega óásættanlegt,“ segir Hreiðar. „Það eru engin illindi í þessu, við þekktum hann ekki áður nema að góðu,“ ítrekar Hreiðar um riftun Sandfells á samningi við undirverktaka sinn.

Geta kært fyrirtæki sem brjóta á fólki til lögreglu
Í júlí áttu fulltrúar Framsýnar fund með fulltrúum Vinnumálastofnunar vegna mála sem tengjast uppbyggingu orkuiðnaðar við Húsavík. Fjöldi undirverktaka kemur að uppbyggingunni og síðan framkvæmdir hófust hafa komið upp nokkur brot sem tengjast launakjörum starfsmanna.

Vinnumálastofnun mun aðstoða Framsýn í þessum málum og Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarforstjóri Vinnumálastofnunar, segir að í flestum tilfellum leysist málin með því að kjör verkafólks séu leiðrétt.

„Aðeins örfá mál hafa farið á borð lögreglu,“ segir Unnur. „Í flestum tilfellum getum við kært fyrirtæki sem brjóta á starfsfólki. Það eru hins vegar stéttarfélögin sem uppgötva brotin og því er þetta samvinnuverkefni. Félögin mætti kalla launalögreglu á vinnumarkaði,“ segir Unnur.

Heimild: Visir.is