Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 22.08.2025 Vatnstankur við Upsa, sveitarfélagið Dalvíkurbyggð

22.08.2025 Vatnstankur við Upsa, sveitarfélagið Dalvíkurbyggð

15
0

Sveitarfélagið Dalvíkurbyggð, óskar eftir tilboðum í verkið „Vatnstankur við Upsa“.

Lauslegt yfirlit

Verkið felur í sér jarðvinnu, gröft og fyllingar og uppsteypu á vatnstank við hlið núverandi vatnstanks við Upsa á Dalvík, auk léttrar byggingar á steyptum grunni fyrir tengingar og loka.

Helstu magntölur:

  • Grunnflötur vatnstanks: 244m2
  • Gröftur: 1500 m3
  • Steypa: 230 m3

Útboðs og verklýsing ásamt teikningum verða send til áhugasamra verktaka, 6.ágúst.

Áhugasamir verktakar geta óskað eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á faglausn@faglausn.is

Vinsamlega sendið inn nafn, símanúmer og tölvupóstfang þess sem kemur til með að vinna að tilboðinu.

Útboðsgögn afhent: 06.08.2025 kl. 00:00
Skilafrestur 22.08.2025 kl. 14:00
Opnun tilboða: 22.08.2025 kl. 14:00

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Heimild: Dalvíkurbyggð

 

Loading..