F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vogabyggð 2 – Drómundarvogur og Dugguvogur – yfirborðsfrágangur, útboð nr. 16190.
Lauslegt yfirlit yfir verkið :
Um er að ræða heildarframkvæmd fyrir jarðvinna undir götu í Drómundarvogi og gangstétt í Dugguvogi, yfirborðsfrágangur götu og stétta, götulýsing og frágangur regnbeða ásamt gróðursetningu.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
– Rif og förgun á malbiki, hellum og kantsteini auk niðurtekt núverandi ljósastaura.
– Uppgreftri fyrir götu- og gangstéttastæðum.
– Fullnaðarfrágangur fyllinga undir nýjar götur og gangstéttastæði.
– Fullnaðarfrágangur götulýsingar.
– Fullnaðarfrágangur á malbikslagi til aðlögunar að baklóð Dugguvogs 7.
– Fullnaðarfrágangur kantsteins og gangstéttaryfirborðs
– Fullnaðarfrágangur blágrænna beða og gróðurbeðs.
Helstu magntölur verksins eru:
- Upprif á malbiki 1.000 m²
- Uppgröftur og brottakstur 620 m³
- Fylling 360 m³
- Malbikun 210 m²
- Hellulögn 1.250 m²
- Forsteyptur kantsteinn 175 m
- Tré og plöntur 188 stk
- Jarðstrengir vegna götulýsingar 200 m
- Ljósastaurar 5m 8 stk
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:30, 17. júlí 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 13. ágúst 2025.