Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Fram­kvæmd­ir hafa áhrif á umferð við Jök­uls­ár­lón næstu kvöld og nætur

Fram­kvæmd­ir hafa áhrif á umferð við Jök­uls­ár­lón næstu kvöld og nætur

11
0
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Mynd: RÚV / Ísak Ólafsson

Unnið verður að viðgerðum á brúnni yfir Jökulsárlón á Breiðamerkursandi dagana 23. júní til 25. júní. Brúin sem um ræðir er rétt við Jökulsárlón.

Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, er athygli vakin á því að lokanir og umferðartafir verða með reglulegu millibili milli klukkan 20 á kvöldin og 8 á morgnana þá daga sem viðgerðir standa yfir.

Vegagerðin biður vegfarendur að aka varlega og virða fyrirmæli og merkingar.

Heimild: Ruv.is