Home Fréttir Í fréttum Nýr skóli á Bíldudal fyrir árslok

Nýr skóli á Bíldudal fyrir árslok

13
0
Stefnt er á að opna skólann fyrir lok árs. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Stefnt er á að opna nýj­an grunn- og leik­skóla á Bíldu­dal fyr­ir árs­lok. Mygla greind­ist í Bíldu­dals­skóla árið 2022 og hef­ur skóla­hald flust á milli þriggja bygg­inga á þrem­ur árum.

Fram­kvæmd­ir við nýj­an skóla hóf­ust í byrj­un árs. Upp­haf­lega átti að opna hann í upp­hafi skóla­árs­ins en taf­ir urðu á fram­kvæmd­un­um. Stefnt er að því að opna skól­ann fyr­ir lok þessa árs, seg­ir Rún­ar Örn Gísla­son, formaður heima­stjórn­ar Arn­ar­fjarðar, í sam­tali við mbl.is.

mbl.is/​Guðlaug­ur Al­berts­son

Nem­end­ur flutt­ir milli bygg­inga

Rún­ar Örn seg­ir tíma­bært að opna nýj­an skóla, en nem­end­ur í grunn­skóla bæj­ar­ins hafa stundað nám í Skrímsla­setr­inu, gamla skól­an­um og sam­fé­lags­miðstöðinni Muggs­stofu síðan mygl­an greind­ist.

Þá hafa kenn­ar­ar verið með aðstöðu í gámi sem er staðsett­ur fyr­ir utan tíma­bundn­ar kennslu­stof­ur.

Skól­inn verður fyr­ir nem­end­ur í grunn- og leik­skól­um bæj­ar­ins. Eng­in mygla hef­ur greinst í leik­skól­an­um en Rún­ar seg­ir hann engu að síður vera kom­inn til ára sinna.

Heimild: Mbl.is