Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 30.06.2025 Lóðarframkvæmdir við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum

30.06.2025 Lóðarframkvæmdir við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum

10
0
Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum. Mynd: Eyjafrettir.is

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir (FSRE), kt. 510391-2259, óska eftir tilboðum í lóðaframkvæmdir við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum fh. Ríkiseigna.

Verkið felur í sér endurnýjun bílastæða norðan við sjúkrahús HSU í Vestmannaeyjum, bætta aðkomu bráðamóttöku og kapellu, endurskipulag bílastæða að sunnanverðu og uppfærslu á ýmsum feril- og dvalarsvæðum.

Lóð sjúkrahússins er u.þ.b. 6400m², og þar af er fótspor spítalans um 1.550m².

Um er að ræða almennt útboð að ræða eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) og grein 1.2.2 í ÍST 30:2012. Útboð þetta er aðeins auglýst innanlands.

Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi FSRE, TendSign.is.

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Fjársýslunnar.

Útboðsgögn afhent: 18.06.2025 kl. 13:58
Skilafrestur 30.06.2025 kl. 12:00
Opnun tilboða: 30.06.2025 kl. 13:00

Beinn hlekkur á útboðslýsinguna