Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í : „Bergþórugerði 1. áfangi“
Verkið felur í sér gerð á nýjum götum, Bergþórugerði og Vallarbraut, á Hvolsvelli. Verktaki skal jarðvegsskipta götustæði samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, reisa ljósastaura og leggja ljósastaurastreng og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annarra veitulagna.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 6.650 m³
- Fylling 7.200 m³
- Fráveita 795 m
- Vatnsveita 358 m
- Ljósastaurar 17 stk
- Hitaveita 1.380 m
Verkinu skal að fullu lokið 1. desember 2025.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 12. júní 2025. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu Selfossi, með tölvupósti á netfangið bardur.arnason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur, eða rafrænt á bygg@hvolsvollur.is fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 2. júlí 2025 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.