Home Fréttir Í fréttum Tugmilljarða niðurgreiðslur kærðar

Tugmilljarða niðurgreiðslur kærðar

48
0
Spjótunum er beint að stuðningi við svokölluð „óhagnaðardrifin“ leigufélög, sem flest tengjast launþegahreyfingunni. mbl.is/Árni Sæberg

Viðskiptaráð Íslands hef­ur kvartað við Eft­ir­lits­stofn­un EFTA (ESA) und­an ólög­mætri aðstoð hins op­in­bera við hús­næðis­fé­lög og ósk­ar rann­sókn­ar á því hvort sá stuðning­ur brjóti gegn ákvæðum EES-samn­ings­ins.

Spjót­un­um er beint að stuðningi við svo­kölluð „óhagnaðardrif­in“ leigu­fé­lög, sem flest tengj­ast launþega­hreyf­ing­unni.

Þau leigja út íbúðir, sem byggðar hafa verið á þeirra veg­um, tölu­vert und­ir því sem tíðkast á hinum al­menna markaði, enda telst Viðskiptaráði til að stuðning­ur hins op­in­bera jafn­gildi 46% niður­greiðslu á lóða- og bygg­ing­ar­kostnaði nýrra íbúða þeirra.

Hins veg­ar nýt­ur all­ur al­menn­ing­ur ekki þeirr­ar niður­greiðslu, þar sem út­hlut­un íbúða er jafn­an háð því að um­sækj­andi eigi aðild að bak­hjarli, yf­ir­leitt í launþega­hreyf­ing­unni.

Heimild: Mbl.is