Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) óskar eftir tilboðum verktaka í endurbætur á starfsstöð SHS að Tunguhálsi 13 í Reykjavík.
Endurnýja á allt ytra byrði hússins og byggja nýtt anddyri á neðri hæð. Að auki eru meðal annars eftirtalin verk:
- Breytingar á gluggum og endurnýjun þeirra.
- Stækkun einnar innkeyrsluhurðar.
- Styrkingar þakburðarvirkis.
- Klæðningar undir loft í bílasal.
Helstu magntölur verksins:
- Þakklæðning 795 m²
- Styrking þaksperra 550 m
- Klæðning útveggja 485 m²
- Steypusögun 40 m
- Steinsteypa 13 m³
- Steypustyrktarstál 505 kg.
- Gluggar og útihurðir 30 stk.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef https://vsb.ajoursystem.net/tender/ frá og með miðvikudeginum 11. júní kl. 08:00.
Tilboðum og öllum fylgigögnum skal skilað rafrænt í sama kerfi eigi síðar en fimmtudaginn 3. júlí 2025 kl. 11:00.
Fyrirvari:
Jákvæð afstaða leyfisveitanda til framkvæmda þarf að liggja fyrir áður en hægt er að taka tilboði. Erindi verkkaupa til leyfisveitanda, byggingarfulltrúa sveitarfélagsins um breytingar á húsnæðinu er í vinnslu. Jákvæð afgreiðsla leyfisumsóknar er forsenda verkefnisins.
Sjá frekar.