Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 30.06.2025 Leikskólinn Árborg kennslustofur

30.06.2025 Leikskólinn Árborg kennslustofur

4
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Leikskólinn Árborg kennslustofur, útboð nr. 16161.

Lauslegt  yfirlit yfir verkið : 
Verkið felur í sér byggingu, flutning og uppsetningu á tveimur kennslustofum, auk tengibyggingar á lóð leikskólans Árborgar. Kennslustofurnar eru um 69 m2 og 92 m2 á einni hæð ásamt 39 m2 tengibyggingu.

Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri.
Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

Verktaki skal hanna kennslustofurnar á sinn kostnað í samræmi við íslenskar reglur og viðmið um opinbert húsnæði.

Aðkoma að byggingasvæðinu er um gróið svæði og er farið fram á að rask við gerð aðkomu og byggingu húss sé lágmarkað sem frekast er unnt. Til að minnka álag á umhverfið er því farið fram á að húsið sé forsmíðað á verkstæði og flutt í hlutum á verkstað.

Upphaf framkvæmda eru við töku tilboðs.
Verklok eru 16. júní 2026

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:30, 6. júní 2025.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 30. júní 2025.