Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í viðhald á götuyfirborði og gangstéttum og nýgerð gangstétta.
Um er að ræða uppbrot og fjarlægingu steypts yfirborðs, fræsing malbiks, malbikun og gerð kantsteins, steypu gatna og stétta, hellulögn gönguþverana ásamt ýmsum frágangi. Verkefnin eru dreifð um Akranes.
Helstu magntölur:
- Fræsing 1.300 m2
- Malbikun 5.000 m2
- Stéttar 1.200 m2
- Götuflekar 400 m2
- Hellulögn 100 m2
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.
Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 26. júní 2025.