Home Fréttir Í fréttum Skýrsla um Brákarborg málar dökka mynd af verkinu

Skýrsla um Brákarborg málar dökka mynd af verkinu

45
0
Skýrsla um Brákarborg málar dökka mynd af verkinu

Úttekt­ar­skýrsla innri end­ur­skoðunar og ráðgjaf­ar á hönn­un og fram­kvæmd­um við leik­skól­ann Brákar­borg mál­ar upp dökka mynd af hönn­un og fram­kvæmd­um leik­skól­ans. Leik­skól­inn hef­ur verið lokaður síðan síðsum­ars 2024.

Skýrsl­an fór fyr­ir end­ur­skoðun­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borg­ar þann 19. maí og var þar samþykkt að vísa henni til borg­ar­ráðs, en þar var hún kynnt í gær.

Upp­fyllti ekki burðar­virkis­kröf­ur

Varp­ar skýrsl­an ljósi á al­var­leg mis­tök sem gerð voru í und­ir­bún­ingi er varðar hönn­un, fram­kvæmd og eft­ir­lit með bygg­ingu Brákar­borg­ar.

Hátt í níu aðilar komu að hönn­un, fram­kvæmd og eft­ir­liti leik­skól­ans. Arki­tekt­úrs­stof­an Arkís ehf. var aðal­hönnuður, Þarfaþing ehf. var aðal­verktaki, Arka­mon ehf. sá um burðar­virki og Verk­sýn ehf. fór með eft­ir­lit.

Í sam­an­tekt niðurstaðna skýrsl­unn­ar kem­ur m.a. fram að bygg­ing­in hafi ekki upp­fyllt burðar­virkis­kröf­ur sam­kvæmt staðli um burðarþol og jarðskjálfta.

Þá tel­ur innri end­ur­skoðun að burðar­virk­is­hönnuður hafi ekki upp­fyllt hæfis­skil­yrði fyr­ir burðar­virk­is­hönn­un skóla­bygg­ing­ar og seg­ir að hann hafi verið val­inn á grund­velli lægsta verðs.

Þá hafi einnig vantað samþykkt­ar burðar­virkisteikn­ing­ar og full­nægj­andi hönn­un­ar­gögn þegar fram­kvæmd­ir hóf­ust.

Heild­ar­kostnaður langt fram úr áætluðum kostnaði

Sömu­leiðis er bent á í skýrsl­unni að verktaki verk­efn­is­ins hafi haft tvö hlut­verk, en auk þess að vera verktaki var hann einnig bygg­ing­ar­stjóri verk­efn­is­ins. Seg­ir í úr­bóta­til­lög­um skýrsl­unn­ar að um­hverf­is- og skipu­lags­svið borg­ar­inn­ar ætti að aðskilja það hlut­verk til að forðast hags­muna­árekst­ur við eft­ir­lit bygg­ing­ar­inn­ar.

Þá var eft­ir­lit með verk­efn­inu ófull­nægj­andi þar sem um­sjón­ar- og eft­ir­litsaðili hafi ekki skilað full­nægj­andi skjöl­um.

Jafn­framt er bent á það í skýrsl­unni að heild­ar­kostnaður verk­efn­is­ins hafi farið langt fram úr upp­haf­legri áætl­un og að þá sé ótal­inn kostnaður sem hlýst af viðgerðum og end­ur­bót­um á burðar­virki leik­skól­ans sem standa enn yfir.

Ættu að meta hvort sækja eigi um skaðabæt­ur

Úrbóta­til­lög­ur innri end­ur­skoðunar og ráðgjaf­ar Reykja­vík­ur­borg­ar eru nokkr­ar. Kem­ur t.d. fram að ekki ætti að fara í útboð nema að útboðsgögn liggi fyr­ir og að einnig sé mik­il­vægt að ekki vanti í útboðsgögn veiga­mik­illa verkþátta í mann­virkja­gerð eins og burðar­virkisteikn­ing­ar og grein­ar­gerð um burðar­hæfni með til­liti til fyr­ir­hugaðrar notk­un­ar.

Þá þurfi um­hverf­is- og skipu­lags­svið borg­ar­inn­ar að efla eft­ir­lit Reykja­vík­ur­borg­ar með fram­kvæmd­um.

Sömu­leiðis ætti um­hverf­is- og skipu­lags­svið að meta heild­ar­kostnað vegna tjóns­ins þegar fram­kvæmd­um við Brákar­borg lýk­ur og hvort sækja eigi skaðabæt­ur til verk­taka og/​eða ráðgjafa.

Skýrsl­una í heild sinni má lesa hér

Heimild: Mbl.is