Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Endurbætur við Jarðböðin kosti um 4,3 milljarða

Endurbætur við Jarðböðin kosti um 4,3 milljarða

51
0
Ljósmynd: Aðsend mynd

Nýtt baðhús á lóð Jarðbaðanna hefur stækkað um helming frá því að verkefnið var boðið út.

Jarðböðin við Mývatn skiluðu 325 milljóna króna hagnaði eftir skatta árið 2024 samanborið við 417 milljóna hagnað árið 2023.

Stjórn félagsins lagði til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa félagsins að fjárhæð 106,5 milljónir króna í ár, að því er kemur fram í ársreikningi félagsins.

Rekstrartekjur Jarðbaðanna ehf. jukust um 2,9% milli ára og námu ríflega 1 milljarði króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 478 milljónum samanborið við 509 milljónir árið áður.

Laun og tengd gjöld jukust um 8,6% milli ára og námu 345 milljónum króna í fyrra. Ársverk voru 32 í fyrra samanborið við 30 á árinu 2023.

Skjáskot af Vb.is

Fjárfestu fyrir 1,1 milljarð í fyrra

Jarðböðin hófu byggingu nýs baðhúss á lóð félagsins á fyrri hluta árs 2022, m.a. þar sem aðstaða félagsins annaði vart lengur þeim fjölda gesta sem sóttu baðlónið, sérstaklega á háannatíma. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið á vormánuðum 2026.

Framkvæmdakostnaður er í dag áætlaður um 4,3 milljarðar króna með virðisaukaskatti. Byggingin hefur stækkað úr 2.722 fermetrum í 4.084 fermetrum frá því að verkefnið var boðið út. Þar af er 950 fermetrar skriðkjallari sem er ekki nýttur.

„Þá liggur fyrir að hefja byggingu á um 600 fermetra þriggja íbúða raðhús við Klappahraun nr.1 á árinu. Þær íbúðir verða teknar í notkun fyrir starfsmenn félagsins á árinu 2026, samhliða uppbyggingaráformum félagsins vegna nýs baðhúss, þar sem ekki er nægilegt framboð af húsnæði í sveitarfélaginu.“

Jarðböðin fjárfestu í fasteignum og lóðum fyrir 1.101 milljón króna í fyrra og 1.056 milljónir króna árið 2023.

Eignir Jarðbaðanna voru bókfærðar á tæplega 3,6 milljarða króna í fyrra samanborið við 2,5 milljarða ári áður. Eigið fé nam 2,3 milljörðum króna í lok síðasta árs.

Félagið Norðurböð er stærsti hluthafi Jarðbaðanna með 44,1% hlut. Íslenskar heilsulindir, dótturfélag Bláa lónsins, eiga fjórðungshlut í Jarðböðunum og þá á Landsvirkjun 19% hlut.

Heimild: Vb.is