Home Fréttir Í fréttum „Algjör falleinkunn“ hjá borginni

„Algjör falleinkunn“ hjá borginni

23
0
Hildur Björnsdóttir, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hild­ur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, seg­ir nýja skýrslu innri end­ur­skoðunar og ráðgjaf­ar Reykja­vík­ur gefa stjórn­sýslu borg­ar­inn­ar al­gjöra fall­ein­kunn. Um sé að ræða skýra birt­ing­ar­mynd þess hvernig borg­ina skorti kostnaðar­vit­und og aðhald er kem­ur að upp­bygg­ingu og hönn­un­ar­ferli bygg­inga.

Skýrsl­an var kynnt á borg­ar­ráðsfundi fyrr í dag og hef­ur nú verið birt.

„Hefði getað orðið mjög al­var­legt slys“

„Mér finnst mjög vont að ein­ung­is ör­fá­um árum eft­ir að bragga­málið kem­ur upp og vinn­an sem fór í gagn í kjöl­far þess, sem átti að fela í sér ýms­ar úr­bæt­ur, að þá séum við að fá annað eins mál í fangið og í raun miklu al­var­legra,“ seg­ir Hild­ur í sam­tali við mbl.is

Í sam­an­tekt niðurstaðna skýrsl­unn­ar kem­ur m.a. fram að bygg­ing­in hafi ekki upp­fyllt burðar­virk­is­kröf­ur sam­kvæmt staðli um burðarþol og jarðskjálfta.

Þá hafi einnig vantað samþykkt­ar burðar­virkisteikn­ing­ar og full­nægj­andi hönn­un­ar­gögn þegar fram­kvæmd­ir hóf­ust.

„Burðar­virk­is­hönn­un­in er auðvitað al­var­leg­asti hlut­ur­inn vegna þess að inni í þessu húsi voru lít­il börn og þarna hefði getað orðið mjög al­var­legt slys,“ seg­ir Hild­ur og nefn­ir að mörgu í ferl­inu hafi verið veru­lega ábóta­vant.

„Kostnaður jókst um næst­um því 70%“

„Mér finnst auðvitað líka mjög al­var­legt að sjá þessa óá­byrgu meðferð al­manna­fjár. Við sáum að á upp­haf­legri kostnaðaráætl­un vegna kaupa og breyt­inga á hús­næðinu og lóðinni var gert ráð fyr­ir 1,25 millj­arði króna en sá kostnaður jókst um næst­um því 70% og fór upp í næst­um 2,1 millj­arð og þá er enn ekki all­ur kostnaður kom­inn fram.

Þetta leiðir auðvitað af sér að hvert leik­skóla­pláss í Brákar­borg kost­ar að minnsta kosti rúm­lega 20 millj­ón­ir króna.“

Borg­ar­ráð skip­ar starfs­hóp

Aðspurð seg­ir hún borg­ar­ráð hafa nú lagt til að skipaður gallaryrði starfs­hóp­ur þriggja starfs­manna borg­ar­inn­ar til að vinna að um­bót­um. Tveir þeirra komi frá fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði borg­ar­inn­ar og einn frá um­hverf­is- og skipu­lags­sviði.

„Við Sjálf­stæðis­menn töld­um reynd­ar eðli­legt að tveir ut­anaðkom­andi aðilar myndu líka koma að þess­um starfs­hópi í ljósi þess að kerfi hafa nú til­hneig­ingu til að verja sjálf sig og það væri eðli­legt að fá ut­anaðkom­andi ráðgjafa inn í verk­efnið en sú til­laga var því miður felld.“

Hún seg­ir það þó ekki bera merki um að ekki ríki traust til starfs­hóps­ins.

„Ég auðvitað bara sendi þeim góða kveðju inn í þessa vinnu.“

Heimild: Mbl.is