
Á bílastæðinu við Laugardalsvöll er nú unnið að því að rífa upp malbik svo hægt sé að leggja grunn að nýju skólaþorpi. Áætlað er að tíu kennslustofur fyrir börn í Laugarnesskóla verði reiðubúnar til notkunar í haust.
Á síðu Reykjavíkurborgar um framkvæmdirnar segir að skólaþorpið muni rísa í áföngum. Áætlað sé að fyrstu fjórar kennslustofur verði tilbúnar til úttekta og afhendingar í september eða október og næstu sex í október eða nóvember.
Seinni áfangi framkvæmdanna geri ráð fyrir sex kennslustofum til viðbótar og 900 fermetra einingahús og sé áætlaður vorið 2026.

Reykjavíkurborg
Skólabyggingarnar verða að hámarki fimm metra háar og syðri innkeyrslu af Reykjavegi inn á bílastæðasvæði Laugardalsvallar verður lokað með framkvæmdunum. Þá verður göngustígur inn í Laugardal lítillega færður. Gert er ráð fyrir að gróðursvæði og stígakerfi muni umlykja svæðið á allar hliðar, en að einnig verði heimilt að afmarka leiksvæði með girðingu.

Skólaþorpið er hugsað sem tímabundin lausn vegna fyrirhugaðra framkvæmda á grunnskólum í Laugardal. Fyrst verður ráðist í framkvæmdir á Laugarnesskóla og síðar Laugalækjarskóla og Langholtsskóla.

Í tillögu um breytingar á deiliskipulagi segir að óljóst sé hversu lengi skólaþorpið verði starfandi. Í tillögunni segir þó að líklegt sé að skólaþorpið muni verða starfrækt í „allmörg ár“, eða fimm til fimmtán ár. Fyrirhugað er að skólinn sinni allt að 450 grunnskólakrökkum, frá 1. til 10. bekk.
Anton Brink, ljósmyndari Vísis, kom við á svæðinu og myndaði bílastæðið, sem bráðum verður að skólaþorpi.

Vísir/Anton Brink
Heimild: Visir.is