Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 26.06.2025 Bolungavík. Gatnagerð og lagnir í Lundahverfi

26.06.2025 Bolungavík. Gatnagerð og lagnir í Lundahverfi

45
0
Bolungarvík

Bolungarvíkurkaupstaður kt. 480774-0279 óskar eftir tilboði í eftirfarandi verk: Lundahverfi Gatnagerð og lagnir.

Verkið felur í sér gatnagerð, lagning fráveitu-, vatnsveitulagna, ídráttarör, útlagning strengja í samstarfi við Mílu, Orkubú Vestfjarða og Snerpu ehf. Ljósastauralagnir, ljósastaurar, umferðar- og götumerkingar ásamt yfirborðsfrágangi og gerð göngustíga fyrir nýtt Lundarhverfi í Bolungarvík.

Meðal helstu verkþátta eru:

  • Útgröftur úr götustæði 3.400 m3
  • Gröftur fyrir lögnum 12.100 m3
  • Fylling og burðarlög 2600 m3
  • Fráveitulagnir. 1.900 m
  • Vatnsveitulagnir. 1.000 m
  • Jarðstrengir 3.400 m
  • Hellulagðar gangstéttir 2.300 m2

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti gegn því að senda tölvupóst á netfangið: finnbogi@bolungarvik.is Nánari upplýsingar gefur Finnbogi Bjarnason í síma 450-7000, 863-9934 og eða í gegnum netfangið finnbogi@bolungarvik.is

Tilboðum skal skila til Tæknideildar Bolungarvíkurkaupstaðar ráðhúsinu við Aðalstræti 10-12 í Bolungarvík eða í tölvupósti á netfangið finnbogi@bolungarvik.is fyrir kl. 10:45 fimmtudaginn 26. júní 2025 þar sem þau verða opnuð kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.