Home Fréttir Í fréttum Snarhækkað fasteignamat kallar á aðgerðir

Snarhækkað fasteignamat kallar á aðgerðir

53
0
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri Hörgársveitar. – Aðsend

Hvergi á landinu hækkar fasteignamat meira en í Hörgársveit. Sveitarstjórinn býst við að brugðist verði við með lækkun skattprósentunnar.

Hvergi á landinu hækkar fasteignamat á næsta ári meira en í Hörgársveit í Eyjafirði. Sveitarstjórinn segist finna fyrir aukinni eftirspurn eftir eignum, bæði í þéttbýlinu og í dreifbýlinu.

Virði fasteigna í sveitarfélaginu hækkar um að meðaltali 22% á milli ára samkvæmt nýju fasteignamati.

„Þetta er að mörgu leyti gleðilegt. Þetta sýnir að fólk er tilbúið að borga meira fyrir fasteignir í Hörgársveit en áður,“ segir Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri Hörgársveitar.

„Það er bara greinlega eftirsótt að vera á þessum stað sem hefur marga kosti rétt fyrir utan Akureyri.“

Uppbyggingin í sveitarfélaginu hefur ekki síst verið í þéttbýlinu við Lónsbakka, steinsnar utan við Akureyri.

Að óbreyttu myndu fasteignagjöld Hörgdæla hækka um 22% á næsta ári, við þetta. Snorri segir ljóst að sveitarstjórn þurfi að lækka álagningarprósentuna.

„Við höfum ekki breytt prósentunni í nokkuð mörg ár en ég held að þessi mikla hækkun hljóti nú eiginlega að kalla á það.“

Þegar fámenn sveitarfélög, sem eru með háa fasteignaskattsprósentu, taka upp á því að lækka álagningarhlutfallið missa þau ekki bara skatttekjur. Þau missa líka framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Samkvæmt reiknireglum sjóðsins eru framlög til sveitarfélaga lækkuð ef þau fullnýta ekki skattstofninn, eins og sagt er.

Ekki eignaskattur heldur þjónustugjöld

Á þetta benti Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, í erindi sem hún hélt á dögunum. Hún telur það skjóta skökku við.

„Við lítum ekki á fasteignagjöld sem eignaskatt, heldur eru þetta í raun þjónustugjöld,“ segir hún.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi.
RÚV / Ragnar Visage

Á síðustu fjórum árum hafa fasteignagjöld að meðaltali hækkað um fimmtán prósent umfram almennt verðlag. Hækkunin er þó misjöfn eftir sveitarfélögum.

Af tíu stærstu sveitarfélögum landsins er Kópavogur það eina sem hefur lækkað álagningarprósentuna nóg til þess að gjöldin hækki ekki að raunvirði.

„Þannig að íbúar Kópavogs fái ekki á sig þessa skattahækkun sem að mínu mati er ósanngjörn skattahækkun vegna þess að þetta er bara afleiðing af stöðu á húsnæðismarkaði.“

Heimild: Ruv.is