Home Fréttir Í fréttum Landsbankahúsið hentar ekki ríkinu

Landsbankahúsið hentar ekki ríkinu

31
0
Landsbankahúsið er eitt glæsilegasta og sögufrægasta hús borgarinnar. Óskað er eftir tilboðum. mbl.is/sisi

Ekki hafa borist til­boð enn sem komið er í hús­eign­ir Lands­bank­ans í miðborg­inni, sem aug­lýst­ar voru í Morg­un­blaðinu 15. maí síðastliðinn. Þetta upp­lýs­ir Rún­ar Pálma­son upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans.

Ráðgert var að ríkið keypti Lands­banka­húsið í Aust­ur­stræti en þegar til kom þótti það ekki henta starf­semi á veg­um hins op­in­bera og ekk­ert varð af kaup­un­um.

Lands­bank­inn flutti árið 2023 starf­semi sína úr alls 12 hús­um við Aust­ur­stræti, Hafn­ar­stræti og Tryggvagötu yfir í ný húsa­kynni við Reykja­stræti 6.

Það var hinn 29. sept­em­ber 2022 að til­kynn­ing birt­ist á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands um að und­ir­ritaður hefði verið samn­ing­ur um kaup rík­is­ins á Norður­húsi við Aust­ur­bakka af Lands­bank­an­um. Um var að ræða tæp­lega 6 þúsund fer­metra bygg­ingu sem ætluð var ráðuneyt­um.

Heimild: Mbl.is