Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 26.06.2025 Reykjavíkurborg. Endurnýjun skrifstofurýmis FAS

26.06.2025 Reykjavíkurborg. Endurnýjun skrifstofurýmis FAS

37
0
Ljósmynd: DV/Hanna

F.h. Fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

Endurnýjun skrifstofurýmis FAS, EES útboð nr. 16106.

Óskað er eftir tilboðum í endurnýjun skrifstofurýmis FAS samkvæmt þessum útboðsgögnum. Óskað er eftir tilboðum í innréttingar, húsgögn og tilfallandi vinnu. Fyrir liggur hönnun rýmisins og skulu bjóðendur gera ráð fyrir að boðnar vörur falli að þeirri hönnun.

Útboðinu er skipt í eftirfarandi hluta;

Hluti 1 Gólfefni
Hluti 2 Innréttingar
Hluti 3 Gluggatjöld og brautir
Hluti 4 Húsgögn
Hluti 5 Lofthljóðvistarlausnir
Hluti 6 Glertöflur

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 10:00 þann 27. maí 2025, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Vettvangsskoðun:
Bjóðendum býðst að mæta í vettvangsskoðun í þessu útboði til að kynna sér rýmið og aðstæður. Tilkynna þarf komu sína í vettvangsskoðun fyrir kl. 13:00 þann 6. júní 2025 með því að senda skilaboð gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar.
Vettvangsskoðun mun fara fram þann 10. júní 2025 kl.13:00 í Borgartúni 14.

Nánari upplýsingar verða gefnar upp til þeirra sem tilkynna komu sína gegnum útboðsvef.
Hafi bjóðendur ábendingar eða athugasemdir á meðan vettvangsskoðun stendur skulu þeir punkta hjá sér þau atriði og senda í kjölfarið inn skriflegar fyrirspurnir gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Engum fyrirspurnum verður svarað af kaupanda á meðan vettvangsskoðun stendur.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10.00 þann 26. júní 2025.