Í ljós hefur komið að asbest er að finna í Blönduhlíð í Mosfellsbæ þar sem til stendur að opna stuðningsheimili fyrir börn og unglinga með fjölþættan vanda á næstu mánuðum. Heimilið er á vegum Barna- og fjölskyldustofu.
Þetta staðfestir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, í samtali við mbl.is.
Hann segir að unnið sé að því að hreinsa asbest úr húsnæðinu og gera nauðsynlegar breytingar svo það standist allar öryggiskröfur. Asbest var gjarnan notað sem einangrun í húsum á árunum 1950 til 1980, en notkun þess hefur verið bönnuð og er það hættulegt heilsu manna.
„Það er verið að taka allt í gegn og þar er allt á áætlun. Það eru upp á brunavarnir og annað að gera sem við þurfum að fylgjast vel með, að það sé allt hundrað prósent,“ segir Guðmundur Ingi.
Opnað í sumar og Biggi lögga deildarstjóri
Framkvæmdir hafa staðið yfir í Blönduhlíð upp á síðkastið, en fyrir áramót var gerð tilraun til að opna þar meðferðarheimili fyrir börn með fjölþættan vanda á vegum Barna- og fjölskyldustofu. Húsnæðið stóðst hins vegar ekki brunaúttekt, en áður en ráðist var í breytingar á því á sínum tíma láðist að kanna hvaða öryggiskröfur giltu um starfsemi meðferðarheimila.
Er þetta því önnur tilraun Barna- og fjölskyldustofu til að koma á fót starfsemi í umræddu húsnæði, sem stofnunin hefur greitt 750 þúsund krónur í leigu á mánuði fyrir frá því síðasta haust.
Samkvæmt skriflegu svari frá frá Barna- og fjölskyldustofu er um að ræða stuðningsheimili fyrir börn sem lokið hafa meðferðum á vegum stofnunarinnar. Heimilið er fyrir börn sem af einhverjum ástæðum geta ekki farið heim að meðferð lokinni og þurfa vistun með stuðningi til að fara aftur út í samfélagið.
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, hefur verið ráðinn deildarstjóri á stuðningsheimilinu, en greint var var frá því á mbl.is í vikunni að hann væri hættur í löggunni og hefði tekið við nýrri stöðu hjá Barna- og fjölskyldustofu.
Gert er ráð fyrir að heimilið verði opnað í sumar, eða um leið og öll tilskilin leyfi hafa fengist og starfsfólk ráðið í allar stöður, að segir í skriflegu Barna- og fjölskyldustofu við fyrirspurn mbl.is.
Ráðherra „opnaði“ heimilið án starfsleyfis
Líkt og áður sagði stóð til að opna meðferðarheimili í Blönduhlíð í desember síðastliðnum og var formlegri opnun þess í raun flýtt og opnaði Ásmundur Einar Daðason, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, heimilið að viðstöddum fjölmiðlum, þann 26. nóvember síðastliðinn, fjórum dögum fyrir síðustu Alþingiskosningar.
Þá hafði brunaúttekt ekki farið fram og starfsleyfi var ekki til staðar. Þegar í ljós kom að um var að ræða sýndaropnun upplifðu foreldrar barna sem biðu eftir því að komast í meðferð við fíknivanda sig svikna. Við tók enn meiri óvissa og bið, en heimilinu var á endanum fundin tímabundin staðsetning á Vogi og var opnað þar í febrúar.
Þegar mbl.is krafði stjórnendur Barna- og fjölskyldustofu svara um hvað hefði farið úrskeiðis og hvers vegna heimilið var ekki opnað, kom í ljós að ekki hafði verið kannað hvaða öryggiskröfur voru gerðar til meðferðarheimilis af þessu tagi, áður en ráðist var í framkvæmdir.
Fóru í framkvæmdir upp á eigin spýtur
Ekki var farið í útboð vegna framkvæmdanna eins og venjan er heldur ákvað Barna- og fjölskyldustofa að ráðast í framkvæmdir upp á eigin spýtur til að flýta ferlinu.
Þá vissu þau ekki að meðferðarheimili væri skilgreint í notkunarflokki 5, samkvæmt byggingarreglugerð, og töldu það falla í notkunarflokk 3. Eitthvað sem var ekki gengið úr skugga um. Ríkari öryggiskröfur eru gerðar varðandi brunavarnir mannvirkja í notkunarflokki 5 og þær úrbætur sem gerðar höfðu verið í Blönduhlíð dugðu ekki til að standast þær kröfur.
Nú hefur einnig komið í ljós að asbest var að finna í húsnæðinu, en það var gjarnan notað sem einangrun við húsbyggingar hér á landi á árunum 1950 til 1980. Asbest er hættulegt heilsu manna hefur notkun þess verið bönnuð á evrópska efnahagssvæðinu. Aðgát þarf að hafa þegar asbest er fjarlægt og sérstök réttindi þarf til að vinna með það.
Heimild: Mbl.is