Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2016 – 2021 á eftirtöldum megin leiðum:
- Biskupstungnabraut (35)
- Hringvegur – Gullfoss, Sigríðarstofa, 71 km
- Þingvallavegur (36)
- Biskupstungnabraut – Lyngdalsheiðarvegur, 22 km
- Laugarvatnsvegur (37)
- Biskupstungnabraut v/Svínavatn – Biskupstungnabraut v/Múla, 36 km
- Skálholtsvegur (31)
- Skeiðavegur – Biskupstungnabraut, 15 km
- Skeiða- og Hrunamannavegur (30)
- Hringvegur – Biskupstungnabr.v/Kjóastaði, 60 km
- Þjórsárdalsvegur (32)
- Skeiðavegur – Búrfell, 32 km
- Lyngdalsheiðarvegur (365)
- Þingvallavegur – Laugarvatnsvegur, 14 km
- Bræðratunguvegur (359)
- Hrunamannavegur – Biskupstungnabraut, 8 km
- Sólheimavegur (354)
- Biskupstugnabraut – Biskupstugnabraut, 15 km
Heildarvegalengd er 273 km.
Helstu magntölur á ári eru:
- Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 45.000 km á ári.
Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2021.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 18. júlí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. ágúst 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.