Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Eyrar­bakka­vegur (34), Stekkar – Tjarnar­byggð, styrk­ing og malbik 2025

Opnun útboðs: Eyrar­bakka­vegur (34), Stekkar – Tjarnar­byggð, styrk­ing og malbik 2025

65
0

Vegagerðin býður hér með út styrkingu og malbikun á 1,7 km kafla á Eyrarbakkavegi, frá Stekkum að Tjarnarbyggð. Verkið felst í að fræsa upp núverandi slitlagi á vegunum, jafna því út og breikka veg lítilsháttar og keyra að jafnaði 15 cm þykku burðarlagi yfir og leggja malbik. Einnig skal verktaki sjá um að fræsa hvinrendur í miðju. 

 

Helstu magntölur eru:
Skering
974 m3
Styrktarlag 0/63
115 m3
Burðarlag 0/22
2.250 m3
Slitlagsmalbik á möl 6 cm
13.500 m2
Frágangur fláa
5,500 m2

Verklok eru 25. ágúst 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 7. apríl 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.