Reitir leita að metnaðarfullum verkefnastjóra til að leiða nýframkvæmdir á sviði íbúðauppbyggingar. Stærsta verkefnið á næstu árum verður Kringlureitur, sem er eitt umfangsmesta uppbyggingarverkefni félagsins. Þar mun rísa nýtt borgarhverfi með áherslu á gæði, fjölbreytni og sjálfbæra hönnun í anda gömlu Reykjavíkur.
Starfið heyrir undir þróunarsvið og felur í sér víðtæka ábyrgð á verkefnastjórnun, gæðaeftirliti og samstarfi við innri og ytri hagaðila. Verkefnastjóri nýframkvæmda er lykilaðili í upplýsingamiðlun um framvindu uppbyggingar til framkvæmdastjóra sviðsins og hefur heildaryfirsýn yfir framkvæmdir á verkstað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórn byggingaframkvæmda
- Eftirlit með verktökum og samstarf við birgja og undirverktaka
- Áætlanagerð, kostnaðareftirlit og eftirfylgni framkvæmda
- Umsjón með áfangaúttektum og gæðaeftirliti
- Samskipti við hönnuði og aðra hagaðila
- Upplýsingagjöf og skýrslugerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði mannvirkjagerðar eða meistararéttindi í iðngrein
- A.m.k. 5 ára reynsla af stjórnun stærri framkvæmdaverkefna
- Reynsla af þróun og uppbyggingu íbúðarverkefna
- Byggingarstjóraréttindi eru kostur
- Reynsla af umhverfisvottunarferli er kostur
- Skipulagshæfni, áreiðanleiki og nákvæmni
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði
Umsóknarfrestur er til og með 4.maí 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Birgir Þór Birgisson (birgir@reitir.is), framkvæmdastjóri þróunarsviðs.
Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis í rekstri auk 700 íbúða og 140 þúsund fermetra atvinnuhúsnæðis í þróun.
Við leggjum áherslu á sjálfbæra uppbyggingu innviða og langtíma leigusambönd þar sem sameiginlegur ávinningur leigutaka, okkar og samfélagsins er í forgrunni. Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.