
Landsvirkjun hefur samið við Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, eða Búrfellslund, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna.
Frá þessi segir í tilkynningu frá Landsvirkjun og kemur fram að reiknað sé með að Ístak hefjist handa í maí og að verkinu ljúki sumarið 2027.
„Sjö tilboð bárust í verkið. Tilboð Ístaks var metið hagstæðast að teknu tilliti til samtölu fjárhæðar þess og tilboðs í kolefniskostnað.
Undir samninginn fellur bygging á járnbentum og steinsteyptum undirstöðum fyrir 28 vindmyllur, sem og gerð kranastæða fyrir uppsetningu vindmyllanna, ásamt allri jarðvinnu.
Þá reisir Ístak um 1000 m² safnstöð á svæðinu, steinsteypta byggingu sem nýtt verður fyrir ýmsan búnað og verkstæði. Safnstöðin verður tengd við tengivirki Landsnets. Þá þarf að leggja töluvert af lögnum á svæðinu og grafa fyrir þeim, ganga frá vatnsveitu, fráveitu og malarplönum.
Fyrri hlutinn tilbúinn 2026
Landsvirkjun samdi í nóvember sl. við þýska fyrirtækið Enercon um kaup, uppsetningu og rekstur á vindmyllunum 28, sem reistar verða í Vaðölduveri. Fyrri helmingur þeirra verður gangsettur á næsta ári og seinni hlutinn árið 2027,“ segir í tilkynningunni.
Heimild: Visir.is