Betri samgöngur ohf. óska tilboða í gerð göngu og hjólastíga ásamt stígalýsingu og nýjum skiltum og merkingum á þremur framkvæmdarsvæðum. Í Hafnarfirði meðfram Reykjavíkurvegi frá Suðurvangi að Glitvangi. Í Garðabæ meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Vífilstaðarvegi að Arnarnesvegi og í Garðabæ frá Arnarnesvegi að sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs.
Hluti af framkvæmdinni er að þvera gatnamót Hjallabrautar og Reykjavíkurvegar þar sem upphækkun verður gerð á framhjáhlaup ásamt endurhönnun miðeyja. Einnig skal ganga að fullu frá hjólabrú yfir Arnarneslæk, brúin kemur samsett en ganga þarf frá brúarhandriðum og stólpum á brúnna og festa brúnna við undirstöður. Hluti heildarframkvæmdarinnar felst í landmótun og frágangi gróðursvæða gerð nýs áningarstaðar í Hafnafirði og færslu á götugögnum s.s, ljósum, skiltum og bekkjum ásamt stígalýsingu . Smíði brúar yfir Arnarneslæk ásamt samsetningu hennar er ekki hluti þessa útboðs.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
- Rifi og förgun á malbiki, hellum og steypu.
- Fullnaðarfrágangi fyllinga og jöfnunarlags undir stígsvæði.
- Malbikun stíga og götu.
- Uppsetningu á lýsingu meðfram stíg.
- Fullnaðarfrágangi á leið- og viðvörunahellum og færslu og uppsetningu á skiltum.
- Uppsetningu brúar yfir Arnarneslæk.
- Uppsetningu umferðarljósa við gatnamót Hjallabrautar og Reykjavíkurvegar
Nánari upplýsingar um verkið er að finna í útboðsgögnum sem finna má á útboðsvef Betri samgangna: tendsign.is.