Home Fréttir Í fréttum Þeir nota stultur til að létta sér störfin

Þeir nota stultur til að létta sér störfin

206
0
Mynd: STÖÐ 2/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON

Stultur eins og krakkar léku sér gjarnan á í gamla daga geta komið sér vel á ólíklegustu stöðum. Því kynntust við í stóriðjuframkvæmdum fyrir norðan.

<>

Okkur fannst hann ganga dálítið skringilega, – svo virkaði hann líka svo stór, – maðurinn sem við sáum vinna í grunni kísilversins á Bakka við Húsavík.

Svo sáum við annan og þá ætluðum við vart að trúa okkur eigin augum. Þarna sást skýringin á þessu skrýtna göngulagi. Þarna vinna sumir á stultum.

Og reyndar vel skiljanlegt við verkefni eins og sá á myndinni er að vinna, að huga að hárri girðingu. Við stóðumst ekki mátið að ræða við viðkomandi en hann starfar hjá girðingaverktaka á Akureyri.
 „Við reynum að létta okkur verkin með því að nota stultur í staðinn fyrir að teygja sig,” sagði Viðar Theodór Friðriksson, stultumaður FB-girðingar á Akureyri, í viðtali í fréttum Stöðvar 2.

-Þurfa menn ekki þjálfun til þess að vinna á stultum?

„Nei, þetta er eiginlega bara eins og að standa á mínum eigin fótum því að þetta réttir sig sjálft af. Þetta er miklu þægilegra. Þetta léttir manni verkin.”

Samstarfsmaður Viðars hjá FB-girðingu, Vilhjálmur Halldórsson, kvaðst þó ekki vinna á stultum.

„Ég er svo hár, ég get rétt honum vírinn,” sagði Vilhjálmur.

„Þær eru svo góðar, þessar stultur, að þær halda jafnvæginu fyrir mann á þessum gormum þarna,” benti Vilhjálmur á.

„Bara vinnuhagræði. Auðvelda manni verkin,” sagði Viðar.

Heimild: Visir.is