Home Fréttir Í fréttum Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum

Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum

90
0

Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum var þannig í síðustu viku að alls voru grafnir 80 metrar.

<>

Lengd ganga er þá orðin 804 metrar sem er um 80 % af heildargraftrarlengd ganga í bergi.

Þetta er mestu afköst í gangagreftrinum til þessa, áður höfðu mest verið grafnir 71 m á einni viku.

Gangagröfturinn hefur gengið afar vel undanfarið og er þetta sjötta vikan í röð þar sem grafið er yfir 60 metra.

Heimild: 640.is