Home Fréttir Í fréttum 19.07.2016 Sementsfestun og þurrfræsing á Vestursvæði 2016

19.07.2016 Sementsfestun og þurrfræsing á Vestursvæði 2016

52
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í festun með sementi ásamt lögn á tvöfaldri klæðingu á Barðastrandavegi (62) um Raknadalshlíð. Samtals 4,05 km. Samhliða er óskað eftir tilboðum í þurrfræsingu og lögn tvöfaldrar klæðingar á Snæfellsnesvegi (54) rétt utan bæjarmarka Borgarness.

<>

Helstu  magntölur:

Festun með sementi                     23.500   m2

Þurrfræsing og jöfnun                  6.500     m2

Tvöföld klæðing                               30.800   m2

Efra burðarlag afrétting                     400    m3

Helstu magntölur flutnings eru:

Flutningur á sementi                     432         tonn

Flutningur steinefna                     832         m3

Flutningur bindiefna                      102         tonn

Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 2017, þó skal sementsfestu og þurrfræsingu lokið með neðra lagi klæðningar fyrir 1. september 2016.

Útboðsgögn verða seld á USB-lyklum hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 4. júlí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. júlí 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.