Home Fréttir Í fréttum Svona mun nýr heimavöllur Man. Utd líta út

Svona mun nýr heimavöllur Man. Utd líta út

22
0
Það verður mikil upplifun að mæta á nýja völlinn. mynd/man. utd

Man. Utd sendi nú í gærmorgun frá sér myndband þar sem hulunni er svipt af nýjum heimavelli félagsins.

Óhætt er að segja að menn þar á bæ séu stórhuga enda á nýi völlurinn að taka 100 þúsund manns í sæti og hann á að kosta um tvo milljarða punda.

Mynd/Manchester United

Það er ekki bara völlurinn sem er glæsilegur því allt svæðið í kringum völlinn verður einnig glæsilegt og hvergi til sparað.

Hér má svo lesa meira um verkefnið.

Mynd/Manchester United

Sir Jim Ratcliffe, einn eigenda félagsins, segir að dagurinn í dag sé risastór fyrir félagið.

„Í dag hefst ótrúlega spennandi vegferð í áttina að glæsilegasta knattspyrnuleikvangi heims. Gamli völlurinn hefur þjónað félaginu vel í 115 ár en er úr sér genginn. Með því að byggja á sama svæði þá getum við haldið í Old Trafford andann,“ sagði Ratcliffe en gamli völlurinn verður rifinn og svæðið byggt upp á nýjan leik.

Með frétt má sjá ljósmyndir af fyrirhuguðum nýju Trafford.

Mynd/Manchester United

 

Mynd/Manchester United
Mynd/Manchester United

Heimild: Visir.is