Home Fréttir Í fréttum Sjö sýndu áhuga í forvali útboðs Dýrafjarðarganga

Sjö sýndu áhuga í forvali útboðs Dýrafjarðarganga

228
0

Verktakafyrirtæki sýna útboði Dýrafjarðarganga mikinn áhuga. Sjö aðilar frá átta löndum sendu inn gögn vegna forvals sem Vegagerðin auglýsti fyrir nokkru síðan. Af þeim eru fjórir sem áður hafa grafið jarðgöng á Íslandi. Fjórir aðilar eru í samstarfi við innlend verktakafyrirtæki. Vegagerðin metur gögn frá fyrirtækjunum og sker úr um hvaða umsækjendur uppfylla sett skilyrði og geti boðið í verkið. Niðurstaða ætti að liggja fyrir eftir um þrjár vikur. Í framhaldi af því fer fram lokað útboð þeirra sem metnir eru hæfir.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að þeir fjórir sem hafa grafið göng hér á landi eða vinna nú að því eru Ístak og Aarsleff frá Danmörku, en Ístak gróf síðast göng á Íslandi við Búðarhálsvirkjun, Metrostav frá Tékklandi í samstarfi við Suðurverk hf., sem starfa nú við Norðfjarðargöng, Íslenskir aðalverktakar og Marti Contractors frá Sviss, sem eru nú að grafa Vaðlaheiðargöng og hefja senn vinnu við stækkun Búrfellsvirkjunar, og LNS SAGA og Leonard Nilsen og sønner frá Noregi, sem grafa nú göng undir Húsavíkurhöfða. Auk þessara fjögurra eru MT Höjgaard frá Danmörku í samstarfi við EPOS S.A. frá Portúgal, C.M.C di Ravenna frá Ítalíu og Aldesa Construcciones frá Spáni. Heimilt er að takmarka fjöldann við fimm aðila sem fá þá að taka þátt í útboðinu ef fleiri uppfylla öll skilyrði og teljast hæfir.

<>

Heimild: Skutull.is