Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í hita-, vökvunar- og fráveitulagnir auk raflagna á íþróttasvæði Þórs við Skarðshlíð á Akureyri. Áætlaður verktími er maí til júní 2025 en háð því hvenær sig svæðisins hættir og völlurinn verður tilbúinn.
Jarðvegsskiptum á framkvæmdasvæðinu verður þá lokið og reiknað er með því að framkvæmdir við lagnir geti þá strax hafist. Um er að ræða raflagnir og hita-, vökvunar- og ræsilagnir í íþróttavelli af fullri stærð og hita og ræsilagnir í æfingasvæði.
Verkefnið verður boðið út í iðngreinaútboði sem skipt er upp í eftirfarandir útboð:
- Lagnir
- Raflagnir
Heildar flatarmál svæðisins er um það bil 12.000 m2
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með föstudeginum 21. febrúar 2025.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 19. mars 2024 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.