Home Fréttir Í fréttum Flug­brautin opnuð á ný

Flug­brautin opnuð á ný

9
0
Búið er að fella ásættanlegan fjölda trjáa og flugbrautin verður opnuð á ný á morgun. Vísir/Einar

Frá og með morgundeginum verður sjúkraflug um austur-vesturflugbraut Reykjavíkurflugvallar leyft á ný. Brautin hefur verið lokuð í tæpar þrjár vikur.

<>

Áttunda febrúar var brautinni lokað á meðan Reykjavíkurborg vann að því að fella tré í Öskjuhlíð sem að mati Samgöngustofu hindruðu öryggi flugumferðar um völlinn. Um fjórtán hundruð tré hafi vaxið upp í hindrunarfleti og ekki hægt að tryggja hindranalaust aðflug og flugtak.

Síðustu daga hefur Reykjavíkurborg unnið hörðum höndum að því að fella trén og um helgina var búið að fella fimm hundruð tré í hæsta forgangi. Eftir það framkvæmdi ISAVIA áhættumat og sendi tilkynningu á Samgöngustofu.

„Tillögur og áhættumat ISAVIA var ágætlega ítarlegt um hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla og rök fyrir því að áhættan væri ásættanleg. Við tókum það til skoðunar og erum búin að rýna gaumgæfilega í það. Við vorum að svara þeim að þetta yrði heimilað,“ segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu.

Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Samgöngustofu.
Vísir/Stefán

Samkvæmt upplýsingum frá ISAVIA geta flugmenn í sjúkraflugi byrjað að nota brautina á morgun, þó með ströngum skilyrðum.

„Þessi forgangur eitt sem um er að ræða er í kringum miðlínu flugbrautar. Þá þarf flugi að vera stýrt inn á hana. Það eru kröfur um ákveðna afkastagetumælingar flugvéla varðandi það að brautin er styttri og sérstaka aðgát flugmanna. Þetta eru svona helstu atriði,“ segir Jón Gunnar.

Borgin mun halda áfram að fella tré næstu vikur.

„Ég held að við séum öll ánægð með að þetta sé að þróisaviast í þessa átt. Það sem skiptir okkur mestu máli að flugöryggi sé tryggt. Við teljum að þessi tiltekna aðgerð núna sé þess eðlis að það sé hægt að leyfa þetta takmarkaða flug. Við væntum þess að áframhaldandi aðgerðir geri okkur kleift að opna brautina þegar það verður klárað,“ segir Jón Gunnar.

Heimild: Visir.is