Home Fréttir Í fréttum Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum er góð

Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum er góð

89
0
Á þessari yfirlitsmynd er sýnt með rauðri línu hve langt göngin eru komin.
Framvindan í gangagreftri í Húsavíkurhöfðagöngum var þannig í síðustu viku að alls voru grafnir 73 metrar.
Lengd ganga er þá orðin 724 metrar sem er um 77 % af heildargraftrarlengd ganga í bergi.

Þetta er mestu afköst í gangagreftrinum til þessa, áður höfðu mest verið grafnir 67 m á einni viku.

<>

Gangagröfturinn hefur gengið afar vel undanfarið og er þetta fimmta vikan í röð þar sem grafið er yfir 60 metra.

Heimild: 640.is