Foreldrar á Eskifirði gagnrýna Fjarðabyggð fyrir aðstöðuleysi. Íþróttahúsið í bænum hefur verið lokað í tvö ár vegna myglu. Formaður bæjarráðs segir þetta forgangsmál og það skýrist á næstu vikum hvort það verður gert við húsið eða byggt nýtt.
Íþróttahúsið á Eskifirði hefur verið ónothæft í tvö ár vegna myglu og íbúar gagnrýna að börn hafi ekki aðgang að íþróttasal í bænum. Fjarðabyggð skoðar möguleika á að fela einkaaðilum að byggja nýtt íþróttahús og að sveitarfélagið leigi aðstöðuna.
Íþróttahúsið á Eskifirði er illa farið af rakaskemmdum og myglu. Fyrir rúmum tveimur árum vakti íþróttakennari athygli á ástandi þess. Þá voru foreldrar farnir að taka börn úr íþróttum vegna veikinda sem þeir röktu til myglunnar og Fjarðabyggð ákvað að loka húsinu.
Bara einu sinni í íþróttir í viku og komast stundum ekki í sturtu
Fulltrúar íbúa og íþróttafélagsins Austra skrifuðu nýlega opið bréf til bæjaryfirvalda og gagnrýndu aðstöðuleysið. Keyra þarf börnin til Reyðarfjarðar í skólaíþróttir. Það henti yngri börnum illa og sum komist ekki í sturtu. Börnin fá einn tvöfaldan tíma í stað þess að mæta tvisvar í viku. Eftir að sparkvöllurinn var tekin úr notkun þarf líka að keyra börn langar leiðir á íþróttaæfingar. Sara Atladóttir, ein bréfritara, segir að foreldrar óttast að áhugi barna á íþróttum og hreyfingu minnki vegna aðstöðuleysisins.
„Munum leiða þetta til lykta á næstu vikum“
Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, segir forgangsmál að opna íþróttahús á Eskifirði. Til skoðunar hafi verið hvort hægt væri að gera við gamla húsið eða hvort byggja þurfi nýtt.
„Svo kemur upp þessi valmöguleiki að einkaaðili sem mögulega treystir sér til að byggja með hagkvæmari hætti en sveitarfélagið getur gert á mun styttri framkvæmdatíma og þá opnast sá valmöguleiki hvort það sé hagkvæmari kostur. Þetta er það sem við erum að taka föstum tökum núna og er forgangsmál hjá okkur að klára hratt og örugglega og munum leiða þetta til lykta á næstu vikum,“ segir Ragnar.
Fram kemur á Austurfrétt að Fjarðabyggð hafi fengið erindi frá félaginu R101 ehf. og eru hafnar viðræður um hvort félagið byggir íþróttahúsið og Fjarðabyggð taki það á leigu.
Heimild: Ruv.is