Home Fréttir Í fréttum Byggingarfulltrúi viðurkennir mistök

Byggingarfulltrúi viðurkennir mistök

26
0
Byggingarfulltrúi viðurkennir mistök og boðar stöðvun framkvæmda. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bygg­ing­ar­full­trú­inn í Reykja­vík hef­ur sent úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála bréf þar sem hann viður­kenn­ir að mis­tök hafi verið gerð við út­gáfu bygg­ing­ar­leyf­is­ins við Álfa­bakka 2 og legg­ur til að hætt verði við starf­semi kjötvinnsl­unn­ar í hús­inu.

<>

Úrsk­urðar­nefnd­in er með stjórn­sýslukæru Bú­seta til um­fjöll­un­ar þar sem kraf­ist er verk­stöðvun­ar. Bygg­ing­ar­full­trúi og meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar hafa fram að þessu hafnað kröfu minni­hlut­ans, íbúa í Árskóg­um 7 og Bú­seta um verk­stöðvun.

Bygg­ing­ar­full­trúi viður­kenn­ir að fara hefði þurft fram mat á um­hverf­isáhrif­um vegna kjötvinnsl­unn­ar í hús­inu. Hvaða áhrif þetta kann að hafa á úr­sk­urðinn kem­ur í ljós á næstu dög­um, en niður­stöðu nefnd­ar­inn­ar er að vænta í fe­brú­ar.

Í bréfi bygg­ing­ar­full­trúa til úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar kem­ur fram að við nán­ari skoðun á aðal­upp­drátt­um hafi komið í ljós mis­ræmi er á milli samþykktra aðal­upp­drátta og skrán­ing­ar­t­öflu. Jafn­framt skort­ir að gera bet­ur grein fyr­ir rými sem áætlað er fyr­ir kjötvinnslu. Þá liggja ekki fyr­ir upp­lýs­ing­ar um hvort til­kynnt hafi verið til Skipu­lags­stofn­un­ar um fyr­ir­hugaða kjötvinnslu og lík­leg um­hverf­isáhrif henn­ar.

Sam­kvæmt 1. viðauka laga um um­hverf­is­mat fram­kvæmda og áætl­ana get­ur pökk­un og niðursuða á jurta- og dýra­af­urðum, þar sem gólf­flöt­ur bygg­inga er a.m.k. 1.000 m2, verið háðar um­hverf­is­mati, en gólf­flöt­ur kjötvinnsl­unn­ar í Álfa­bakka er 3.200 fer­metr­ar.

Bygg­ing­ar­full­trúi viður­kenn­ir að óheim­ilt hafi verið að gefa út bygg­ing­ar­leyfi fyr­ir kjötvinnsl­una fyrr en álit Skipu­lags­stofn­un­ar um mat á um­hverf­isáhrif­um lægi fyr­ir eða ákvörðun stofn­un­ar­inn­ar um að fram­kvæmd sé ekki mats­skyld. Það sé svo hlut­verk Skipu­lags­stofn­un­ar að taka ákvörðun um hvort fram­kvæmd­in skuli háð um­hverf­is­mati sam­kvæmt lög­un­um.

Kjötvinnsl­an hefði átt að fara í um­hverf­is­mat

Það er mat bygg­ing­ar­full­trúa að álit Skipu­lags­stofn­un­ar um um­hverf­is­mat fyr­ir­hugaðrar kjötvinnslu hefði átt að liggja til grund­vall­ar við af­greiðslu um­sókn­ar um breyt­ingu á út­gefnu bygg­ing­ar­leyfi. Bygg­ing­ar­full­trúa er ekki kunn­ugt um til­kynn­ingu fé­lags­ins til Skipu­lags­stofn­un­ar um fyr­ir­hugaða kjötvinnslu áður en sótt var um fyrr­greinda breyt­ingu á bygg­ing­ar­leyf­inu. Að mati bygg­ing­ar­full­trúa er ekki nægj­an­lega skýrt á aðal­upp­drátt­um hvaða svæði inn­an húss­ins eru ætluð und­ir kjötvinnslu, þ.e. hvaða hlut­ar af rým­inu falla und­ir kjötvinnslu og eru órjúf­an­leg­ur hluti henn­ar. Er óskað nán­ari skýr­inga á þessu.

Í bréfi bygg­ing­ar­full­trúa er einnig vísað í um­sögn skipu­lags­full­trúa frá 10. janú­ar 2023 þar sem kem­ur fram að um­fang og staðsetn­ing starf­sem­inn­ar skipti máli þar sem um­fangs­mik­ill mat­vælaiðnaður eigi al­mennt að fara fram á at­hafna­svæði skv. skil­grein­ingu land­notk­un­ar í skipu­lags­reglu­gerð. Þá seg­ir að al­mennt sé heim­ilt að vera með hrein­lega at­vinnu­starf­semi og létt­an iðnað á miðsvæðum, sem kjötvinnsla get­ur fallið und­ir.

Sér­stak­lega er tekið fram að við hönn­un og nán­ari út­færslu starf­semi skuli gætt að um­hverf­isáhrif­um vegna ná­lægðar við íbúðarbyggð í Suður-Mjódd. Hér þarf að huga að því að kjötvinnsl­an sé hluti af ann­arri ráðandi starf­semi á viðkom­andi lóð og um­fang henn­ar þarf að taka mið af því. Að mati bygg­ing­ar­full­trúa er álita­mál hvort kjötvinnsla af því um­fangi sem samþykkt­ir aðal­upp­drætt­ir heim­ila sam­ræm­ist skipu­lags­áætl­un­um sem gilda um Álfa­bakka 2A.

Í lok bréfs­ins til úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar kem­ur fram að bygg­ing­ar­full­trúi telji veru­leg­ar lík­ur á því að út­gefið bygg­ing­ar­leyfi fyr­ir kjötvinnslu, að því um­fangi sem samþykkt hef­ur verið, brjóti í bága við gild­andi skipu­lag fyr­ir Álfa­bakka 2A. Við slík­ar aðstæður geti bygg­ing­ar­full­trúi stöðvað fram­kvæmd­ina. Þá er einnig bent á að bygg­ing­ar­full­trúa kunni að vera heim­ilt að breyta eða fella bygg­ing­ar­leyfið úr gildi.

Meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar Reykja­vík­ur hafnaði til­lögu minni­hlut­ans á borg­ar­stjórn­ar­fundi þann 7. janú­ar sl. um fram­kvæmda­stopp við Álfa­bakka 2. Nú þegar bygg­ing­ar­full­trúi hef­ur viður­kennt að mis­tök hafi verið gerð við út­gáfu bygg­ing­ar­leyf­is­ins og lagt til að kjötvinnsl­an verði ekki í hús­inu er kom­in upp ný staða í mál­inu og á meðan er beðið eft­ir úr­sk­urði úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála.