Ístak vinnur að viðgerðum á leikskólanum Brákarborg í Reykjavík sem opnaður var í lok síðasta árs.
Viðgerðirnar ganga einkum út á að styrkja burðarvirki byggingarinnar. Ein af kröfum útboðsins var að byggt yrði yfir þak hússins meðan á framkvæmdum stæði.
Á meðfylgjandi mynd má sjá bráðabirgðaþak sem sinnir þessu hlutverki og tryggir bestu mögulegu aðstæður við viðgerðir á þaki hússins.
Sambærileg lausn var notuð við endurbætur á Grillinu á Hótel Sögu með góðum árangri en Ístak hefur unnið að heildarendurbótum Hótel Sögu síðastliðin þrjú ár.
Heimild: Facebooksíða Ístak hf.