Home Fréttir Í fréttum Óvíst hvort verður af uppbyggingu í Skálafelli

Óvíst hvort verður af uppbyggingu í Skálafelli

46
0
Skjáskot af Ruv.is

Skíðasvæðið í Skálafelli verður lokað í allan vetur, annað árið í röð. Til stóð að fara í uppbyggingu og viðhald fyrir nokkrum árum en framkvæmdir sem áttu að vera langt komnar eru ekki enn hafnar, og óljóst hvort af þeim verður yfir höfuð.

<>

Skíðasvæðið í Skálafelli verður alveg lokað annað árið í röð. Árin á undan var opið um helgar frá 1. febrúar.

Samkvæmt samkomulagi sem var undirritað árið 2018 af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, sem sjá um rekstur skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu í sameiningu, átti ný stólalyfta og önnur uppbygging í Skálafelli að vera langt komin.

Mikil uppbygging hefur verið í Bláfjöllum síðustu ár. Þar voru settar upp tvær nýjar skíðalyftur og nú síðast komið upp snjóframleiðslukerfi. Á sama tíma hefur ekkert verið gert í Skálafelli, þrátt fyrir undirrituð skjöl og samninga.

Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, segir að verið sé að endurskoða alla uppbyggingu á svæðinu og ekki sé víst að það verði að fyrirhugaðri uppbyggingu yfir höfuð.

Heimild: Ruv.is