Home Fréttir Í fréttum 14.06.2016 Laxárdalsvegur (59), Þrándargil – Gröf

14.06.2016 Laxárdalsvegur (59), Þrándargil – Gröf

114
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 5,9 km kafla Laxárdalsvegar frá Þrándargili að Gröf, ásamt útlögn klæðingar.

<>

Helstu magntölur eru:

  • Fylling og fláafleygar                    21.330  m3
  • Skering                                           20.480  m3
  • Neðra burðarlag                            15.350  m3
  • Efra burðarlag                                  6.700  m3
  • Tvöföld klæðing                             37.950  m2
  • Frágangur fláa                               73.700  m2

Verkinu skal vera lokið með einfaldri klæðingu eigi síðar en 1. september 2016. Verkinu skal að fullu lokið með tvöfaldri klæðingu eigi síðar en 1. júlí 2017.

Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 30. maí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. júní 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.