Home Fréttir Í fréttum Búið að grafa um helming Húsavíkurhöfðaganga

Búið að grafa um helming Húsavíkurhöfðaganga

109
0

Nú eru búið að grafa um helming jarðganganna í Húsavíkurhöfða. Í síðustu viku voru samtals grafnir 62 metrar og er lengd ganganna  orðin 457 metrar, sem er um  48,5% af heildargraftrarlengd ganga í bergi.

<>

Þeir sem búa og starfa næst framkvæmdunum hafa orðið varir við titring frá sprengingum undanfarið.  Að sögn Bjarna Jónssonar, byggingatæknifræðings, munu áhrif frá sprengingunum  fara minnkandi,  því gangagröfturinn fjarlægist nú byggðina.

Hús næst jarðgöngunum voru skoðuð áður en framkvæmdir hófust og ekki hefur orðið vart við að tjón hafi orðið á mannvirkjum vegna framkvæmdanna.

Heimild: Vikudagur.is