Home Fréttir Í fréttum Nýr fiskvegur úr Laxárvatni opnaður

Nýr fiskvegur úr Laxárvatni opnaður

51
0
Framkvæmdir við nýja fiskveginn. Mynd: Höskuldur B. Erlingsson

Nýlega var opnaður nýr fiskvegur úr Laxárvatni niður Laxá á Ásum. Stíflan í ánni, sem var orðin slitin og skemmd, leggst af sem og laxastiginn úr vatninu en þó getur yfirfall runnið yfir stífluna ef vatnsstaða er há í Laxárvatni. RARIK sá um framkvæmdina, sem unnin var í samvinnu við Veiðifélag Laxár á Ásum og Veiðimálastofnun en hún er liður í að endurheimta hvernig vatn rann ofan úr Svínadal fyrir 70 árum síðan, eða áður en til Laxárvatnsvirkjunar kom.

<>
Framkvæmdir við nýja fiskveginn. Mynd: Höskuldur B. Erlingsson

Virkjunin var aflögð 2014 en hún tók u.þ.b. tvo þriðju af vatnsmagni Laxár á Ásum á sex kílómetra kafla. Nýi fiskvegurinn á að auðvelda laxinum að ganga upp í vatnið og þaðan í Fremri Laxá. Framundan eru svipaðar framkvæmdir við stífluna við Svínavatn og gætu þær opnað leið fyrir laxinn upp í Svínavatn. Reiknað er með að Laxárvatn lækki um að minnsta kosti 30 sentímetra og Svínavatn um 70 sentímetra vegna þessara framkvæmda.

Framkvæmdir við nýja fiskveginn. Mynd: Höskuldur B. Erlingsson

Heimild: Huni.is