Orka náttúrunnar ohf. óska eftir tilboðum í verkið: „Kaldavatnsveita – Jarðstrengir“
Verkið felst í lagningu á tveimur nýjum 11 kV jarðstrengjum milli stöðvarhúss Hellisheiðarvirkjunar og kaldavatnsveitu við Engidalskvísl. Hvor jarðstrengur er rétt rúmlega 5 km að lengd.
Einnig felst í verkinu útvegun og lagning á 690 V jarðstrengjum frá þjónustuhúsi Engidal til fimm borholuhúsa á vatnstökusvæðinu.
Útboðsgögn afhent: | 02.12.2024 kl. 14:00 |
Skilafrestur | 08.01.2025 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 08.01.2025 kl. 14:00 |
Sjá nánari upplýsingar um verkið í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvef kaupanda.