Kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns er áætlaður um sautján milljarðar króna. Fangelsið á að koma í stað Litla-Hrauns og geta hýst hundrað fanga með möguleika á að bæta við 28 afplánunarrýmum síðar.
Guðrún Hafsteinsdóttir, starfandi dómsmálaráðherra, kynnti nýtt öryggisfangelsi sem á að rísa í landi Stóra-Hrauns, steinsnar frá Litla-Hrauni, á fundi á Eyrarbakka á miðvikudag. Greint var frá því í fyrra að ekki svaraði kostnaði að gera endurbætur á fangelsinu á Litla-Hrauni sem er talið úr sér gengið.
Lýsti ráðherrann, sem er jafnframt þingmaður Suðurkjördæmis þar sem fangelsið á að rísa, stöðunni í fangelsismálum þannig að ráðast þyrfti í tafarlausar aðgerðir til þess að leiðrétta hana. Íslensk stjórnvöld hefðu fengið margar athugasemdir, meðal annars um aðbúnað kvenfanga og húsakostinn að Litla-Hrauni.
Nýja fangelsið verður að norrænni fyrirmynd með áherslu á endurhæfingi og öryggi fanga og fangavarða. Sagði Guðrún það forsendu umbóta á fullnustukerfi refsinga sem hefur sætt gagnrýni vegna langra biðlista eftir afplánun. Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, sagði á kynningarfundinum að boðunarlistar hefðu lengst og dómar fyrnst í hlutfalli við þá.
Hægt að bæta við 28 rýmum
Ríkisjörðin Stóra-Hraun varð fyrir valinu sem heppilegt svæði fyrir nýtt öryggisfangelsi. Þar eiga að rísa fangadeildir, vinnustaðir, skóli og enduhæfingarhús fyrir fanga.
Áætlað er að í framtíðinni verði þörf fyrir 128 afplánunarrými í öryggisfangelsi svo hægt sé að stytta biðlista eftir aflplánun og sjá til þess að refsingar fyrnist ekki vegna þeirra.
Áformin á Stóra-Hrauni gera ráð fyrir aðstöðu fyrir hundrað afplánunarrými og plássi til þess að byggja síðar annan búsetukjarna með 28 rýmum til viðbótar. Allir innviðir og stoðrými á fangelsissvæðinu verða tilbúin til að taka við þeim 28 rýmum þegar og ef ákveðið verður að byggja þau.
Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2025 til 2028 er gert ráð fyrir 12,6 milljörðum króna í byggingu fangelsis sem á að koma í staðinn fyrir Litla-Hraun.
Í kynningunni í síðustu viku kom fram að kostnaður við framkvæmdina væri metinn 16,6 milljarðar króna á verðlagi í janúar á þessu ári. Núvirt nemur hann um sautján milljörðum króna. Ef ákveðið yrði að reisa strax 128 afplánunarrými næmi kostnaðurinn nítján milljörðum króna að núvirði.
Miðað við núverandi byggingaráform næmi kostnaður á hvern fanga um 173 milljónum króna. Ef ráðist yrði strax í byggingu 128 rýma næmi kostnaður á haus um 157 milljónum króna.
Tilbúið til afhendingar síðla árs 2028
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir á Stóra-Hrauni hefjist strax næsta vor samkvæmt tímalínu sem Nína Baldursdóttir, fulltrúi Framkvæmdasýslunnar ríkiseigna, kynnti á fundinum á Eyrarbakka. Fangelsið eigi svo að vera tilbúið til afhendingar á síðasta ársfjórðungi ársins 2028.
Fyrir utan möguleikann á að byggja 28 rýma búsetukjarna á fangelsislóðinni sagði Nína að mögulegt væri að stækka fangelsið enn frekar um 112 rými. Ef ekki væri þörf á að bæta við afplánunarrýmum væri hægt að nýta það í tengda starfsemi eins og kvennafangelsi eða opið fangelsi þar sem möguleiki væri á að samnýta innviði og starfskrafta að einhverju leyti.
Heimild: Visir.is