
Fyrstu skóflustungurnar að nýju vinnsluhúsi landeldisfyrirtækisins First Water voru teknar á Laxabraut 19 í Þorlákshöfn í vikunni. Þegar vinnsluhúsið rís verður það eitt stærsta vinnsluhús landsins, alls 30.500 fermetrar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að þær Amelía Ósk Hjálmarsdóttir stöðvarstjóri, Sigríður Birna Ingimundardóttir verkefnastjóri og Valgerður Friðriksdóttir mannauðsstjóri hafi mundað skóflurnar fyrir hönd First Water, en á fjórðu skóflunni hafi verið Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.
115 manna vinnustaður
Stefnt sé að því að vinnsluhúsið verði tekið í notkun haustið 2026. Full starfsemi verði í húsinu alla daga ársins og allur tæknibúnaður verði háþróaður og hinn vandaðasti.

First Water
„Þegar starfsemin verður komin á fullt verða um 115 manns við vinnslu í húsinu og stefnt er að því að allur okkar fiskur fari þarna í gegn. Það skiptir okkur miklu máli að hafa sem mest af starfseminni í Þorlákshöfn og því er þetta stórt skref fram á við og ég hlakka mikið til að sjá húsið rísa og verða tekið í notkun,“ er haft eftir Valgerði Friðriksdóttur, mannauðsstjóra First Water.
120 milljarða fjárfesting
Alls þrjú hundruð manns muni koma til með að starfa hjá fyrirtækinu frá árinu 2029 en heildarfjárfesting First Water í Þorlákshöfn sé áætluð um 120 milljarðar króna.
„Við stefnum hátt og komumst þangað með því að vanda til verka og hafa óbilandi trú á verkefninu og löngun til að vinna það vel. Landeldi á svo mikið inni og við ætlum að gera allt okkar til að sýna fram á það.“
Heimild: Visir.is