Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óska eftir tilboðum í verkið: Norðfjarðarflugvöllur endurbætur 2016.
Yfirlit yfir verkið
Skafa skal núverandi lag af ófrostöruggu efni ofan af núverandi flugbraut sem er 970 m löng og 23 m breið. Þá skal rétta þversnið með skeringu og afréttingarlagi, setja styrktarlag (breytileg þykkt), burðarlag og tvöfalda klæðingu á flugbrautinni. Í akbraut og flughlaði skal efnisskipta og setja styrktarlag, burðarlag og tvöfalda klæðingu. Á öðrum enda flugbrautarinnar skal bæta við snúningsplani og skal byggja það upp með styrktarlagi, burðarlagi og tvöfaldri klæðingu.
Leggja skal ídráttarrör undir flugbraut á þremur stöðum. Fjarlægja skal núverandi ljós, undirstöður ljósa og strengi. Undirstöður ljósa á að setja upp aftur.
Helstu verkþættir:
- Skering 11.000 m3
- Styrktarlag 11.300 m3
- Burðarlag 5.000 m3
- Klæðing K2 25.440 m2
Verð á útboðsgögnum
3500 kr.
Opnunarfundur: